Árni Björnsson Hvað merkir þjóðtrú? [Birtist fyrst í vorhefti Skírnis 1996.] Hér geturðu komið með athugasemdir Í aldarfjórðung hefur höfundur þessarar greinar unnið á þjóðháttadeild Þjóðminjasafns Íslands og haft það sem aðalstarf að safna upplýsingum meðal aldraðs fólks um daglegt líf í bernsku þess og æsku. Sú söfnun hófst reyndar þegar um 1960. Stöðugt hefur verið fyllt í skörð þeirra sem féllu frá svo að nú eru allra elstu heimildamenn fæddir um 1900. Meðal margs annars hefur verið spurst fyrir um vinnubrögð, lífshætti, venjur og átrúnað. Á sama tíma hefur starfsfólk deildarinnar sífellt leitast við að svara eftir bestu getu fjölbreytilegum spurningum sem snerta þetta umfangsmikla svið. Meðal þeirra eru fjölmargar fyrirspurnir, ekki síst utan úr heimi, sem snerta hina rómuðu "þjóðtrú" okkar Íslendinga. Oftast er að vísu spurt um meinta almenna trú fólks á huldufólk og drauga og óskað eftir staðfestingu á henni. Af slíku tilefni hef ég þráfaldlega mátt spyrja sjálfan mig þeirrar samviskuspurningar, hvenær ég væri að segja satt og hvort ég ætti yfirleitt að segja satt um þessi efni. Afstaða mikils meirihluta heimildamanna þjóðháttadeildar við eftirgrennslan um átrúnað varð smám saman til þess að ég tók að efast um að orðið þjóðtrú væri heppilegt eða gagnsætt um þau fyrirbæri sem það er látið ná yfir. Niðurstaða mín og persónuleg játning er sú að orðið sé því miður býsna villandi þótt það láti vel í eyrum. Merkingarsaga orðsins Nútímamerking orðsins er ekki nema hundrað ára gömul. Fram undir síðustu aldamót merkti þjóðtrú jafnan hið sama og ríkistrú eða þjóðkirkja. Andstæða þess var hjátrú sem þýddi aukatrú líkt og hjákona merkir aukakona. Elsta dæmi sem fundist hefur um orðið þjóðtrú er í Landaskipunarfræði Gunnlaugs Oddssonar síðar dómkirkjuprests frá 1822. Þar segir meðal annars um trúarbrögð Norðurlandabúa: Allir Norðmenn játa, sem Danir, þau trúarbrögð, er Marteinn Lúther hóf og í lög vóru leidd af Kristjáni konungi 3. í báðum ríkjunum, samt í grundvallar-lögum Norvegs er lögtekið að vera skuli þjóðtrú, meðan landið er byggt.(1) Í ævisögu Benjamíns Franklíns, sem Jón Sigurðsson forseti þýddi og út kom árið 1839, er svo til orða tekið: "Í Bandafylkjunum er engin föst þjóðtrú lögtekin, heldur búa allskonar trúarflokkar þar í samblandi án aðskilnaðar."(2) Í Landstíðindum árið 1850 standa þessi orð í athugasemdum við frumvarp til grundvallarlaga Íslands: "Við 2. gr. eru þau evangelisku-lútersku trúarbrögð gjörð að þjóðtrú Íslendinga, og í 4. gr. er það konúngi gjört að skyldu að vernda þessa þjóðtrú, enda þó hann játaði hana ekki. Um kostnað til þessarar þjóðtrúar viðurhalds er forsíálega ekkert talað."(3) Páll Melsteð segir í mannkynssögu sinni um nýöldina árið 1870: "Skotar stofnuðu hjá sér eitt mikið félag sem þeir kölluðu "Covenant" til þess að verja þjóðtrú sína og þjóðfrelsi (1638) og ári síðar varð af því fullur fjandskapur og vopnaviðskipti milli Skota og konungs."(4) Arnljótur Ólafsson skrifar í blaðið Fróða á Akureyri árið 1884 langa grein "Um trúbragðafrelsi hér á landi" þar sem hann tekur svo til orða: Í 47. gr. er talað um réttindi og skyldur þeirra manna, er aðra trú játa en þjóðtrúna. [...] En með nafninu þjóðkirkja er játað, að vald þjóðfélagsins sé komið í stað alveldis konungdómsins, þjóðtrúin í stað konungstrúar. [...] Hinn lúterski trúarsiður er svo samvaxinn orðinn hugarfari þjóðarinnar og líferni, að eg get eigi hugsað mér annað en að hann verði þjóðtrú landa minna um aldr og æfi.(5) Í þýðingu sinni á Íslandsþættinum í ritverki Konráðs Maurers um norræna réttarsögu segir Eggert Briem sýslumaður í tímaritinu Lögfræðingi árið 1899: "Kristni var lögtekin á alþingi (árið 1000) og skyldi hún vera þjóðtrú Íslendinga."(6) Það er því öldungis ljóst að fram til 1900 er merkingin ríkistrú eða þjóðkirkja ríkjandi um orðið þjóðtrú. Elsta dæmi sem fundist hefur um orðið þjóðtrú eða öllu heldur þjóðtrúarfræði í yngri merkingunni (folklore) er í einkabréfi frá Ólafi Davíðssyni til föður síns árið 1884: Þjóðsögurnar, gáturnar, þulurnar etc. eru kepphestur minn um þessar mundir og hafa reyndar alltaf verið. Það er undarlegt að vera mest interesséraður fyrir náttúrufræði og þjóðtrúarfræði. Maður skyldi þó halda, að þær ættu ekki miklum mun betur saman en Jehovah og Belsebubbur, en sú verður oft raunin á, að extrema se tangunt [andstæður mætast] og þau undarleg í mannssálunni.(7) Hið sama kemur fram í bréfi frá Ólafi til Jóns Árnasonar árið 1886: "Nú er eg með því marki brenndur, að eg ann engri fræði eins og þjóðtrúarfræði okkar Íslendinga og get aldrei þagað, þegar um hana er að ræða." Opinberlega notar Ólafur orðið þjóðtrú fyrst í þessari merkingu á nokkrum stöðum í inngangi að Íslenzkum skemmtunum árið 1888. Aftur gerir hann það í minningargreinum um sagnasafnarana Gísla Konráðsson og Magnús Grímsson árin 1894 og 1895.(8) Næsti maður til að nota orðin þjóðtrú og þjóðtrúarhugmynd í þessari merkingu á prenti er kunningi Ólafs, Sæmundur Eyjólfsson guðfræðingur og búfræðingur. Í grein með yfirskriftinni "Þjóðtrú og þjóðsagnir" í Tímariti Hins íslenska bókmenntafélags 1891 segir hann meðal annars: Já, það var lengi viðkvæðið, að þjóðtrú og þjóðsagnir væru ekkert annað en ómerkilegar kerlingabækur, og enginn menntaður maður gæti gjört svo lítið úr sér að gefa gaum að þeim. Það er fyrst á þessari öld, að ýmsir fræðimenn hafa orðið til þess að líta nokkuð öðruvísi á þetta. Á þessari öld hafa ýmsir kannast við, að þjóðtrúin og þjóðsagnirnar hefðu í sér fólgna marga og dýrmæta fjársjóði, sem nauðsynlegt væri að grafa upp og bjarga frá glötun.(9) Þessi nýja merking orðsins þjóðtrú bar sigurorð af hinni eldri á aðeins áratug og varð ofan á um og eftir aldamótin 1900. Upphaflega merkingin hefur naumast sést síðan í prentuðu máli. Glöggt dæmi um merkingarbreytinguna eru tvær málsgreinar með sex ára millibili í blaðinu Bjarka á Seyðisfirði hvor sínum megin við aldamótin. Hin fyrri er eftir Þorstein Erlingsson frá árinu 1896 um mannfélag í Vesturheimi: Ameríkumenn hafa aungva lögboðna þjóðtrú, og því á hjörðin aungva sameiginlega leið til fyrirheitna landsins hinum megin, heldur ætlar hver að fara með sinn flokk þann veg, sem honum þykir farsælastur, því Ameríkumenn vilja hafa samkeppnisrétt sinn óskertan í því sem öðru. Sú síðari er í einskonar ritdómi um útgáfu Íslendinga sagna eftir Sigfús Sigfússon frá árinu 1902. Hann segir um Ármanns sögu og Atla sögu Ótryggssonar: "Báðar þessar sögur eru nauðalíkar Bárðarsögu og nokkurs virði í þjóðtrúarlegu tilliti, þótt ekki væri annað."(10) Árið 1908 kom út bókin Þjóðtrú og þjóðsagnir sem Oddur Björnsson gaf út en Jónas Jónasson frá Hrafnagili bjó til prentunar. Jónas ritaði einnig formála og minntist meðal annars á þjóðtrú í tengslum við þjóðsiði. Hið sama gerði hann í greininni "Ódauðleiki og annað líf" í Skírni 1915 og í kaflanum um "Hugsunar- og trúarlífið" í Íslenzkum þjóðháttum sem út kom árið 1934. Sigfús Sigfússon sagnasafnari tók yngri merkinguna í annað sinn upp á arma sína í formálum að draugasögum og jarðbúasögum sem fyrst voru prentaðar árin 1925 og 1931. Einar Ól. Sveinsson heldur henni í hinni ágætu bók sinni Um íslenzkar þjóðsögur sem út kom 1940. Frá þeim tíma má segja að sú merking hafi verið allt að því lögboðin þegar fjallað er um dulræn efni.(11) Orsakir merkingarbreytingar Ljóst má vera af framansögðu að þeir Ólafur Davíðsson og Sæmundur Eyjólfsson eru upphafsmenn þeirrar merkingarbreytingar orðsins þjóðtrú sem varð ofan á um aldamótin og hér hefur verið rakin. Báðir dóu þeir ungir, Sæmundur 35 ára 1896 en Ólafur 41 árs 1903. Meistari þeirra og frumkvöðull að söfnun þjóðlegra fræða, Jón Árnason, notaði hinsvegar aldrei orðið þjóðtrú. Það kemur ekki fyrir í þjóðsögum hans og hvorki í formála hans né eftirmála að þeim. Jón Árnason talaði feimnislaust um bábiljur, hégiljur, hindurvitni, hjátrú, kreddur og kerlingabækur og annað í þeim dúr. Frummerking hinna fyrstnefndu mun helst vera þvaður, furðusagnir og fjarlægur vitnisburður en orðið hjátrú var auðsæilega litað af kristilegum rétttrúnaði. Það merkti aðra trú en hina einu sönnu biblíutrú, og var þegar af þeim sökum syndsamleg á dögum ný-rétttrúnaðarins sem ríkti innan íslensku kirkjunnar mestalla 19. öld eftir dauða Magnúsar Stephensens dómstjóra 1833.(12) Ástæða er til að velta fyrir sér orsökum þess að sporgöngumenn Jóns Árnasonar kusu að velja sömu fyrirbærum annað heiti. Upphaflega virðist um að ræða einskonar fegrunaryrði eða "eufemisma". Ólafi Davíðssyni virðist hafa þótt öll fyrrnefnd orð Jóns heldur niðrandi um þá göfugu andlegu afurð sem Jón Árnason hafði þó sjálfur nefnt "skáldskap þjóðarinnar". Helst er svo að sjá sem Ólafur hafi tekið upp hið hljómþýða orð þjóðtrú til samræmis við orðið þjóðsaga. Það orð átti sér reyndar ekki heldur langa sögu. Upphaflega sést það notað í merkingunni þjóðarsaga í frétt um Árbækur Espólíns í Fjölni árið 1837 og nokkrum sinnum í sömu merkingu á næsta áratug.(13) Jón Árnason stingur hinsvegar upp á að nota orðið um sögurnar sem safnast höfðu til hans. Hann segir í bréfi til Konráðs Maurers árið 1860: Ef safnið kemst nokkurntíma frá mér, sem eg er nú farinn að verða vongóður um, "hvað á þá barnið að heita?" Sýnist yður það ekki, að það hefði aðaltitilinn Alþýðleg fornfræði, úr því það er í ráði, að það verði ýmislegs efnis; fyrsti kaflinn sögulegur, mætti hann þá ekki heita Þjóðsögur Íslendinga, á titlinum sem honum heyrði til (special titlinum).(14) Áður hafði Jón Árnason notast við orð eins og alþýðusögur og munnmælasögur. Í samræmi við boðsbréf norræna fornfræðafélagsins frá 1846 hugsaði hann sér einnig í fyrstu að nota orðið alþýðleg fornfræði um allt safnið sem upphaflega átti að rúma allskyns sögur og ýmsa siði, leiki, kveðskap, átrúnað og fleira sem eftir dauða Jóns birtist að nokkru leyti í bókum frænda hans, Ólafs Davíðssonar.(15) Nýyrðið þjóðsaga má vissulega kallast nokkuð hæpin þýðing á orðum eins og folkesagn á öðrum Norðurlandamálum, folk tale á ensku eða Volkssage á þýsku. Í þeim tungumálum er sá munur á orðunum folk og nation, að folk merkir nánast alþýða en nation íbúar tiltekins ríkis. Á íslensku getur orðið þjóð merkt hvort tveggja, enda hafa hingaðtil ekki aðrar þjóðir en Íslendingar búið á Íslandi svo að neinu næmi. Því er eðlilegt að við tölum um Þjóðarbókhlöðu, Þjóðleikhús, Þjóðminjasafn, Þjóðskjalasafn, þjóðarbúskap og Þjóðhagsstofnun þótt eins mætti hafa lands- eða ríkis- fyrir framan. Hið mikla sagnasafn sýnist hafa fært Jóni Árnasyni heim sanninn um að sömu eða áþekkar sögur voru til í ýmsum gerðum um allt land og þekktust jafnt meðal múgamanna sem embættismanna, enda voru skrásetjarar hans aðallega bændur og prestar. Því gat jafnvel verið réttlætanlegra að tala um þjóðsögur en alþýðusögur, einkum ef embættismenn vildu ekki láta telja sig til alþýðu. Hvorki Jón né helstu samverkamenn hans, Guðbrandur Vigfússon og Jón Sigurðsson, stungu nokkru sinni upp á orðinu þjóðtrú, kannski vegna þess að þeir töldu fyrirbæri af því tagi ekki eins mikla sameign þjóðarinnar og sögurnar. Ekki notuðu þeir heldur orðið alþýðutrú, enda mætti þá hafa grunað að alþýða manna væri ekki miklu hégiljufyllri en lærðir menn. Þjóðsögur og trúarhugmyndir Grunnurinn að staðhæfingum um einhverja allsherjar þjóðtrú Íslendinga er vitaskuld hinn mikli auður þjóðsagna af ýmsum toga. En þjóðsögur þurfa síður en svo að vera vitni um almenna lifandi þjóðtrú. Þær eru í eðli sínu öðru fremur afþreying, munnlegt skemmtiefni, barnagaman, uppeldisfræði, viðvaranir, kímni, dæmisögur, lífsspeki, skáldskapur og fagurfræði. Þetta vissu brautryðjendurnir sem í upphafi söfnuðu sögum, munnmælum og öðru alþýðlegu fróðleiks- og skemmtiefni. Jón Árnason kvaðst í formála sínum að Íslenzkum þjóðsögum og ævintýrum ekki trúa slíkum sögum, en eins og áður var minnst á segir hann af mikilli ást og virðingu að þær séu "skáldskapur þjóðarinnar og andlegt afkvæmi hennar öld eftir öld". Hann segir líka að munnmælin sýni "ímyndunarafl þjóðarinnar sem ávallt skapar og yrkir". Formáli Jóns var hinsvegar ekki prentaður árið 1862. Guðbrandur Vigfússon, sem sá um prentunina suður í Leipzig, sagði að hann hefði borist of seint. Jón skrifaði þá eftirmála við síðara bindið árið 1864, en hann kom líka um seinan svo að Maurer setti sjálfur stuttan eftirmála og lista yfir sögumenn. Í eftirmála sínum sagði Jón meðal annars: Eg ætlast til að enginn sé svo blindur að trúa þeim sögum sem ganga mann frá manni fótalausar, margvíslega afbakaðar, og sem eru einber diktur. [...] Vér könnumst allir við misheyrn, ofsjónir, drauma, einnig hversu eðlilegan kraft öflug orð geta haft og hvað lítið skapar sögu, sem í fyrstu er rétt eðlileg, en sem eins og skáldið Virgilíus segir um gyðjuna Tama, vex óðum, þó lítil sé fyrst og verður að galdrasögu þegar minnst varir. Jón hafði greinilega nokkrar áhyggjur af því að útgáfa sagnanna kynni að auka á hégiljur vegna þess veikleika manna að vilja trúa öllu sem komið er á prent. Í bréfi til Konráðs Maurers 24. apríl 1864 segir hann um eftirmála sinn sem komið hafði "um seinan": Eg hlakka til að sjá eftirmálann yðar; minn mátti missa sig að einu leyti, en þó hafði eg samið hann til þess að hann skyldi bera það með sér, að sögurnar væri ekki sannar, eða eg áliti þær ekki sannar, en eg samdi hann vegna alþýðumanna þeirra sem halda að allt sé heilagur sannleiki sem prentað er. Jón var ekki einn um slíka þanka. Sumum heimildamönnum hans þótti þetta líka áhorfsmál. Guðmundur Einarsson á Geitaskarði skrifar Jóni 24. júlí 1864. Hann hefur þá fengið þriðja heftið af þjóðsögunum og er að öllu samanlögðu ánægður með þær en rís þó nokkuð hugur við þegar kemur að sannfræðinni: Villir það þó sjónir alþýðu manna, sem hér á landi er svo gefin fyrir sagnafræði, að menn deila loksins eigi rétt frá röngu, og slíkt hefir einnig svo víða slæðst inn í fornsögur vorar og þar hina eiginlegu sagnafræði (sbr. þátt Orms Stórólfssonar og ótal margt fleira); eg tala ekki um þó menn sé nefndir til sögunnar sem til hafa verið eða til eru enn, og eitthvað gjörist það í sögunni sem lýtur að hjátrú eða þess háttar, svo sem að þeir hafi verið margfróðir eða glímt við drauga eða kveðið niður drauga eða annað þar á borð við, því það eru hégiljur og verða aldrei annað en hégiljur, sem við (eins og allar þjóðir og á öllum tímum) höfum nokkurn snefil af, og ekki síst við, sem enginn getur annað sagt en séum nokkuð hneigðir til skáldskapar.(16) Fullyrðingar um hjátrú fyrri alda Ljóst er að marga safnendur þjóðsagna og annarra þjóðlegra fræða hérlendis og erlendis um miðja 19. öld gerði bæði sárt og að klæja við þá iðju. Sem upplýstir kristnir raunsæismenn vildu þeir ekki stuðla að endurvakningu eða viðhaldi þeirrar hjátrúar sem þeir töldu fólk á fyrri öldum hafa verið uppfullt af. Á hinn bóginn hörmuðu þeir hversu lítið væri eftir af henni því þeir töldu að fyrir bragðið yrði minna úr söfnun "þjóðlegra fræða". Ástæða er til að prófa þá staðhæfingu að fólk hafi á öldum áður almennt trúað á huldar vættir. Ekki virðist þetta eiga við fyrstu aldir Íslands byggðar. Álfar eru reyndar nefndir í eddukvæðum og í Gylfaginningu er minnst á ljósálfa á himni og dökkálfa í jörðu niðri. Einskonar tröllum bregður fyrir í hinum ævintýralegu fornaldarsögum en í Íslendinga sögum eru það í hæsta lagi blendingar eins og í Grettis sögu. Afturgöngur koma vissulega fyrir í nokkrum Íslendinga sögum svo sem Eyrbyggju, Laxdælu, Grettlu, Svarfdælu, Eiríks sögu rauða, Hávarðar sögu Ísfirðings og Flóamanna sögu en samt er draugagangur þar fremur undantekning en regla. Í hinum meira eða minna sannsögulegu samtíðarsögum frá 13. og 14. öld, Sturlungu og biskupasögum, er ekkert dæmi um álfa eða tröll og aðeins eitt dæmi um afturgöngu, Selkollu sem Guðmundur góði kom fyrir. Þar er hinsvegar talsvert um draumvitranir, fyrirboða og forspár sem einnig eru vel þekktar úr Íslendinga sögum. Orðið huldumaður sést ekki fyrr en í handritum frá 15. öld en huldufólk og ljúflingar eru nefnd á 17. öld.(17) Í Íslandslýsingu Odds biskups Einarssonar sem hann reit á latínu seint á 16. öld er greint frá sögum um afturgöngur sem líkist sögnum um holdgaða anda víða erlendis. Einnig segir hann það "hald almúgans, að til sé einhver guðlaus kynstofn í jörðu inni" sem þó sé skiptur innbyrðis. Í framhaldi af því sést huldufólki og tröllum lýst í fyrsta sinn, og þeirri lýsingu ber mjög saman við það sem segir um útlit þeirra og eðli í þjóðsögum Jóns Árnasonar næstum þrem öldum síðar. Þrátt fyrir orðalag Odds um "hald almúgans" (Arbitratur vulgus esse) segir hann í næstu andrá að trú á tilvist þessara dularvera sé nokkuð sem "sumir slá fram" (ut quidam conjiciunt) en yfirleitt virðist allir sæmilega viti bornir menn álíta það "hrekkjabrögð, tál og sjónhverfingar Satans". Orð hans þurfa því ekki að merkja "allur almúgi". Fyrir sanntrúaðan kristinn mann, hvað þá verðandi biskup, hlaut reyndar sérhver hjátrúarfullur einstaklingur að vera einum of mikið og umtalsverður fjöldi að vaxa í augum.(18) Líku máli gegnir sennilega um Árna Magnússon þótt af öðrum sökum sé. Árni var öðru fremur skynsemdarmaður og fyrirleit allt rugl, hvar og hvernig sem það birtist. Honum hefur því sýnilega blöskrað hversu margir tóku greinilega nokkurt mark á sögum þeim af draugum, tröllum og huldufólki sem hann lét sjálfur skrifa upp af óseðjandi forvitni sinni. Í bréfi til Þormóðs Torfasonar árið 1690 gerir hann að vanda lítið úr fornaldarsögum og líkt og hreytir um leið önuglega út úr sér í spássíugrein að þær líkist helst tröllasögum af Gullbrá og Jóru í Jórukleif "sem allir menn trúa á Íslandi".(19) Í skrifum sumra menntamanna á lærdómsöld og upplýsingaröld gætir reyndar oft nokkurrar lítilsvirðingar í garð "alþýðu manna" eða "almúgans" sem er ósjaldan settur allur undir einn hatt líkt og reyndar má einnig sjá í ýmsum alhæfingum nútímans um fyrri tíðar fólk. Slíkra alhæfinga gætir nokkuð í ferðabók Eggerts Ólafssonar frá miðri 18. öld en hann gerir líka allglögga grein fyrir því hvernig ýmsir embættismenn notfærðu sér trúgirni annarra til að upphefja sjálfa sig og koma ár sinni fyrir borð. Nokkuð mun til í því að einmitt á 17. öld og framan af 18. öld hafi allskonar furðutrú og þó einkum galdratrú verið hvað útbreiddust á Íslandi. Í sjálfu sér þarf engan að undra þótt hugkvæmir menn létu sig á þrengingartímum dreyma um töfralausn vandamála sinna. Það er sambærilegt við fáránlegt brask ýmissa athafnamanna nú á dögum sem láta sig dreyma um skjótfenginn gróða með fjármálatöfrum. Því má vera að Jón Espólín hafi nokkuð til síns máls þegar hann segir um 17. öldina hálfri annarri öld seinna: "Nálega var allt fólk undirlagið hjátrú og teikna trú og ei höfðu menn þau greindarvísindi er vel máttu skilja satt frá ósönnu."(20) Varla var þetta samt greindarskorti almennings að kenna, heldur meira og minna opinberri innrætingu. Í fyrsta lagi höfðu siðaskiptin svift fólk því hjálpræði sem því hafði öldum saman verið talin trú um að það ætti von um fyrir milligöngu dýrlinga. Katólskar skriftir virðast þannig hafa verkað líkt og styrkjandi viðtöl í sálrænni meðferð nú á dögum. Afnám þeirra kann að hafa valdið grósku ýmissa furðuhugmynda. Í öðru lagi reið galdrafárið yfir sunnan úr Evrópu. Áróðursmenn og formælendur þess voru samt ekki alþýðumenn heldur einstakir lögmenn og prestar. Að sjálfsögðu hefur tekið nokkrar kynslóðir að uppræta með öllu þá ógn sem innræting og bein framkvæmd galdrafársins höfðu valdið.(21) Á síðari öldum kemur í ljós að svo langt sem rakið verður virðast menn á hverjum tíma hafa trúað á hjátrú fyrri alda manna en álíta hana sem næst útdauða á sínum eigin samtíma. Magnús Stephensen, samtíðarmaður Jóns Espólíns, taldi til dæmis að draugar hefðu næstum dáið út um sína daga í lok 18. aldar. Á hinn bóginn áleit hann naumast óhætt að ferðast óvopnaður um hálendið vegna hugsanlegra útilegumanna, enda höfðu Fjalla-Eyvindur og Halla enn verið á lífi meðan Magnús var í bernsku.(22) Þýski lagaprófessorinn og Íslandsvinurinn Konráð Maurer ferðaðist um Ísland og safnaði sögum sumarið 1858. Hann átti manna mestan þátt í að þjóðsögur Jóns Árnasonar komust á prent, en segir í formála sinnar eigin bókar um íslenskar alþýðusögur sem út kom á þýsku árið 1860, tveim árum á undan þjóðsögum Jóns Árnasonar: Alveg eins og hjá okkur í Þýskalandi er trúin á mikinn hluta alþýðusagna, einkanlega goðfræðisögur, þegar þorrin á Íslandi. Í mesta lagi ein og ein gömul kona eða einstaka sérvitringur eins og t.d. Ólafur Sveinsson bóndi í Purkey, sem látinn er fyrir fáum árum, trúir enn á tilveru álfa, trölla og annarra meinvætta. Á sumar aðrar sögur svo sem af draugum og göldrum leggur sumt einfalt og lítt menntað fólk samt nokkurn trúnað líkt og hjá okkur.(23) Jónas frá Hrafnagili lætur hinsvegar svo sem hjátrú sé fyrst að deyja út um sína daga snemma á 20. öld: Þannig er nú margt af eldri trú manna og hjátrú gersamlega horfið, nema ef kynni að leynast enn fram til dala í sumum sveitum og afskekktari héruðum landsins. En nú eru því miður þeir óðum að deyja, sem kunna hin fornu fræði fólksins, og ekkert er að koma í þess stað. Unga fólkið fyrirlítur heimskuna úr körlunum og kerlingunum, en gætir þess ekki, að það er þá að láta þjóðina týna niður efni merkra vísinda, sem nú er safnað til um allan heim.(24) Sigurður Nordal hélt því reyndar fram árið 1971 að orð Maurers um þverrandi hjátrú Íslendinga á 19. öld sem vitnað var til hér að framan hlytu að vera skrifuð af hlífðarsemi við Íslendinga. Honum fannst einnig að Jón Árnason hlyti að hafa mælt um hug sinn þegar hann kvaðst ekki trúa á sannleika þjóðsagna. Sigurður segir: Var hann [Konráð] svo einlægur vinur Íslendinga, að hann hefur fremur viljað gera minna en meira úr hverju því, sem gæti orðið þeim til vansa. Jón hefur að sjálfsögðu verið miklu hjátrúaðri alla sína ævi en hann vildi játa fyrir sjálfum sér, hvað þá Maurer.(25) Engin rök færir Sigurður samt fyrir þessum staðhæfingum önnur en eigin tilfinningu. En slíkar fullyrðingar eru einmitt dæmigerðar fyrir þau nýrómantísku sjónarmið sem nemendum og öðrum almenningi hafa verið innrætt síðustu hundrað ár. Eldhugar í þeim anda vildu blátt áfram að fólk væri eða hefði að minnsta kosti verið hjátrúarfullt. Það þótti svo náttúrulegt og óspillt og umfram allt skemmtilegt. Samkvæmt þeirri innrætingu átti þjóðin, alþýða manna, að hafa trúað og tryði jafnvel enn upp til hópa á tilvist drauga og huldufólks. Því var ósjaldan bætt við að þeir sem ekki vildu kannast við að trúa á neitt yfirnáttúrlegt væru einungis hræddir við að verða að athlægi. Slík staðhæfing er þó mjög hæpin og styðst ekki við neina altæka könnun. Það er líka blátt áfram þversögn í því fólgin að menn óttist að verða sér til skammar með því að líkjast fjöldanum! Yfirleitt óttast spéhræddir menn frekar að skera sig úr, vera öðruvísi en aðrir. Á það má vissulega fallast að fólk sem trúir á dularfull fyrirbæri sé yfirleitt skemmtilegra en hinir sem kallast normal, og það er leitt að slíkir menn skuli ekki vera enn fleiri. En í samræmi við þann boðskap að allur þorri almennings hafi trúað á þvílík undur og til að viðhalda því notalega hugarflugi hefur nánast verið talin skylda að kalla allar dulrænar hugmyndir hinu virðulega nafni þjóðtrú en forðast nafngiftir sem hugsanlega þættu niðrandi. Sakir þessarar innrætingar meðal síðustu kynslóða hafa sennilega aldrei fleiri Íslendingar verið veikir fyrir dulhyggju en einmitt nú um stundir, nema ef vera skyldi á 17. öld. Að auki er hér um að ræða alþjóðlegt fyrirbæri á tækniöld. Stórir hópar fyllast firringu í garð samfélagsins og vilja ekki aðlagast því. Sumir leita hugsvölunar í vímuefnum, aðrir leitast við að ná tölvusambandi á veraldarvef við fólk á sem fjarlægustum slóðum, og enn aðrir sækja í samneyti við dularverur og máttarvöld í hólum, klettum, jöklum og á framandi hnöttum. Fyrirspurnir þjóðháttadeildar Í upphafi greinar var þess getið að Þjóðminjasafn Íslands hefði í meira en aldarþriðjung ástundað skipulega söfnun heimilda um íslenska þjóðhætti. Þjóðháttadeild safnsins hefur verið í stöðugu sambandi við nokkur hundruð heimildamenn, einskonar úrtak fólks frá öllum byggðum landsins, sem flest er að jafnaði á aldrinum 70-90 ára. Tala heimildamanna á þessu árabili skiptir orðið þúsundum. Elstu heimildamenn þjóðháttadeildar voru fæddir um 1870 en ömmur þeirra og afar, sem þau gátu munað eftir, voru fædd snemma á nítjándu öld. Í þessari heimildasöfnun hefur ekki verið sóst eftir spennandi furðusögum til að koma í verð, heldur frásögnum af daglegu lífi upp og ofan. Við hvert efnisatriði, sem leitað var upplýsinga um, hefur þó ævinlega verið hnýtt spurningum um það hvort nokkur trú væri tengd því, hvort sem um var að ræða torfristu, umhirðu búpenings, ullarvinnu, ljós og eld, heyskap, andlát og útfararsiði, hátíðabrigði og hvaðeina sem nöfnum tjáir að nefna. Smám saman fór að vekja athygli að það voru yfirleitt langt innan við tíu af hundraði þessa gamalfróða og samviskusama fólks, sem virtust hafa einlæga trú á tilveru huldra vætta. Ekki voru þeir fleiri sem af eigin raun könnuðust við þjóðtrú í sambandi við vinnubrögð nema þá sem gamanmál. Þetta kom í fyrstu nokkuð á óvart því að starfsmaður deildarinnar og greinarhöfundur var eins og flestir aðrir að sjálfsögðu uppfullur af þeirri innrætingu að fólk hefði áður fyrr upp til hópa trúað á huldar vættir og hégiljur og aldrað fólk gerði það enn. Hinir háttvísu heimildamenn hafa ugglaust talið að starfsmenn Þjóðminjasafnsins væru upplýst fólk og þeir vildu greinilega ekki svara neinum móðgandi orðum. En það var eins og ýmsir væru hálfþreyttir á þessum sífelldu spurningum um þjóðtrú. Flestir kváðust hafa heyrt eða lesið um ýmis dulræn fyrirbæri og jafnvel þekkt fólk sem í alvöru trúði á ýmsar dularverur, en oftast hefði verið talað um þær í gamni. Fremur fáir hafa samt beinlínis viljað afneita með öllu þeim möguleika að einhver yfirnáttúrleg fyrirbæri kunni að vera til. Þetta er afstaða sem kalla mætti efahyggju eða skynsamlega varfærni en varla trú. Með orðinu trú á ég að sjálfsögðu við átrúnað og sannfæringu en ekki einhverja meira eða minna óljósa skoðun og hugarslangur. Ella gæti trúarjátning kristinna manna byrjað einhvernveginn á slíka leið, "Ég geri ráð fyrir að guð almáttugur sé skapari himins og jarðar. Ég reikna með að Jesús Kristur sé hans einkasonur o.s.frv." Viðhorfskönnun fyrir tveim áratugum Þegar grannt er skoðað kemur í ljós að þetta viðhorf heimildamanna þjóðháttadeildar er í allgóðu samræmi við niðurstöður úr könnun Erlends Haraldssonar sálfræðings frá 1974 meðal fólks sem fætt var á bilinu 1904-1944. Þvert ofan í það sem stundum sést staðhæft reyndust ekki nema 7% telja tilveru huldufólks vissa og aðeins 9% trúðu ótvírætt á reimleika. Álíka margir eða 10% töldu hvort tveggja á hinn bóginn með öllu óhugsandi. Mun fleiri tóku mark á draumvitrunum, fyrirboðum og forspám eða töldu hugsanlegt að ná sambandi við látna ættingja. Langflestir eða um 70% voru samt meira eða minna óvissir í sinni sök. Hér er enn um að ræða útbreidda efahyggju fremur en trú. Oft hefur verið vitnað til þessarar könnunar, þegar fjallað er um dultrú Íslendinga á síðari árum, og ósjaldan af talsverðum glannaskap. Erlendir og innlendir fjölmiðlar hafa stundum túlkað niðurstöður hennar svo að 50-80% þjóðarinnar trúi á drauga og huldufólk. Sú útkoma er fengin með því að bæta við hina tiltölulega fáu ósviknu huldufólks- og draugatrúarmenn öllum þeim sem trúa á drauma, fyrirboða, álagabletti, tengsl við framliðna, huglækna, stjörnuspeki og jafnvel einnig þeim sem ekki afneita algjörlega þeim möguleika að eitthvað yfirnáttúrlegt kunni að eiga sér stað. Slíkt er auðvitað fráleit aðferð. Þar hefur efinn verið tekinn til marks um samþykki, auk þess sem það er lagt saman sem að réttu lagi ætti að ganga hvert upp í annað. Til dæmis má telja líklegt að flestir þeirra sem trúa á huldufólk taki einnig mark á draumum, en harla óvíst er að allir sem viðurkenna berdreymi séu einnig álfatrúar. Þetta leiddi könnunin reyndar nokkuð skýrt í ljós.(26) Efahyggja Líf kynslóðanna í hinni óstöðugu íslensku náttúru kann að hafa kennt landsmönnum að efast um, að nokkuð væri stöðugt eða óbreytanlegt, heldur gætu ótrúlegir hlutir gerst: eyjar risið úr hafi og horfið aftur, menn vaknað upp við að tún þeirra og engjar væru skyndilega hulin ösku eða hrauni, jökulflóð hefðu sópað burt heilu byggðarlagi eða bæir hrunið í hálfri sveit af völdum jarðskjálfta. Það hefði ekki verið að undra þótt sálmur Lúters "Vor Guð er borg á bjargi traust" gæti næstum hljómað sem kaldhæðni í eyrum þessa fólks. Þetta gæti verið ein ástæða þess að Íslendingar eru upp til hópa tregir til að afneita yfirnáttúrlegum hlutum með öllu. Þeir hafa vanist því kynslóðum saman að vera ekki of vissir í sinni sök, útiloka ekki fortakslaust hið ótrúlega og treysta ekki einvörðungu á hin viðurkenndu ófullkomnu skilningarvit. Því bar að virða gömul varnaðarorð, ef mönnum var það útlátalaust, jafnvel þótt menn hvorki skildu þau né tryðu þeim beinlínis. Hér gilti sú óskráða regla: "Það er aldrei að vita." Jafnvel einlægir upplýsingarmenn geta fyrr og síðar átt til að segja líkt og Eggert Ólafsson á miðri 18. öld: [...] þótt ekki beri að trúa sögnum um ára og galdra, sem hjátrú og sjúkt ímyndunarafl hefir skapað, þá er einnig rangt að fara út í þær öfgar á hinn veginn að afneita því með öllu, að andar séu til og að áhrifa þeirra geti gætt. Því að slíkt er að bera brigður á orð guðs og að samþykkjast skaðlegri villu, aðeins vegna þess að vor takmarkaða skynsemi og ófullnægjandi heimspeki getur ekki gefið skýringar á þeim hlutum, sem vor alvísi skapari hefir talið, að væri mönnunum fyrir beztu að halda leyndum.(27) Eins og áður sagði virðist svipuð efagirni hafa verið uppi á teningnum, þegar Jón Árnason hóf þjóðsagnasöfnun sína um miðja síðustu öld. Það voru Jóni engin vonbrigði. Aðalatriðið fyrir hann var að í flestum sveitum fundust að lokum einstaklingar sem kunnu að segja eða skrá munnmælasögur. Nafngreindir heimildamenn Jóns voru þó ekki nema innan við fjögur hundruð talsins eða hálft prósent þjóðarinnar. Engu að síður tókst þeim á nokkrum áratugum að ná saman einu glæsilegasta þjóðsagnasafni í heimi. Samt væri heldur en ekki ógætilegt að túlka allan sagnauð og frásagnargleði Íslendinga endilega sem almenna þjóðtrú. Frá okkar dögum má taka Þórberg Þórðarson sem dæmi um þetta efni. Hann kunni að segja listilega frá yfirnáttúrlegum fyrirbærum sem hann kvaðst sjálfur trúa á. Þórbergur var samt langt frá því að vera dæmigerður fyrir allan þorra Íslendinga. Lifandi frásagnir hans valda því hinsvegar að nú á dögum halda sumir að meira hafi verið um vættatrú í Suðursveit en annarstaðar á landinu.(28) Bernskuminningar Hina lífseigu hugmynd um að fólk á fyrri tíð hafi jafnan verið langtum hjátrúarfyllra en samtímamenn má að öllum líkindum rekja til spurulla barna og stundum hugmyndaríkra viðmælenda þeirra. Börn spyrja margs sem enginn á rökrétt svör við. Sumir leitast samt við að skálda handa þeim einhverja skýringu, bæði til að þóknast þeim og svala eigin hugarflugi, auk þess sem sífellt er gripið til eldri sagna. Þetta á ekki síst við um ýmsa varúð. Áhrifamikil saga um hættu getur upphaflega verið búin til í viðvörunarskyni fyrir barn en lifir áfram vegna eigin gildis. Yfirleitt er saga eða dularfullt forboð áhrifameira uppeldisráð en beinar ávítur, áminningar eða vísindalegar skýringar. Barn lætur ekki af að ganga afturábak þótt sagt sé að það geti rekið hælana í og dottið og meitt sig. Öðru máli gegnir ef því er sagt að með þessu sé það að ganga móður sína ofan í gröfina. Ágætt dæmi úr nútímanum er sagan um óvini tannanna, Karíus og Baktus.(29) Barnið trúir einatt í fyrstu því sem sagt er, og enn fram á gamals aldur getur sami maður hæglega álitið að amma eða gamli frændi sem aldrei töluðu vísvitandi ósatt orð, hafi sjálf trúað á það sem þau sögðu honum í bernsku. Ég hef óvart staðið sjálfan mig að slíkri innrætingu og leyfi mér að segja frá í fyrstu persónu: Ég á indæla fimm ára dótturdóttur. Hún heimsótti mig sem oftar á síðasta gamlársdag. Þá flytur huldufólkið búferlum einsog allir vita. Nú vildi sú litla fara í feluleik við afa sinn. Og hún faldi sig. Og ég gekk um alla íbúðina og tautaði stundarhátt: "Hvar skyldi hún vera? Ætli álfarnir hafi stolið henni? Skyldu þeir láta okkur hafa umskipting í staðinn?" En eftir á hugsaði ég: Þegar þessi stúlka er orðin áttræð, skyldi hún þá segja við barnabörnin sín: "Já, hann afi minn, hann trúði sko áreiðanlega á huldufólk." Kveikjur að þjóðsögum og venjum Hér verður gert ráð fyrir því að saga sé í upphafi búin til af óþekktum höfundi eða sagnamanni. Rætur hennar geta verið margvíslegar en þegar vel tekst til fer saman listræn sköpunarþörf sögumanns og löngun áheyrenda í skemmtun og spennu. Sögurnar gegndu fyrst og síðast sambærilegu afþreyingarhlutverki og spennubækur eða hryllings- og ævintýrakvikmyndir nútímans. Ósjaldan fór slík höfundarsaga á flakk og stundum var hún endursögð af enn betri sagnamanni. Þá varð henni einatt lengra lífs auðið og komst jafnvel á bók að lokum. Kveikjan að sögum, munnmælum og siðvenjum getur verið margvísleg. Þar er oft leitað skýringa á náttúrulegum en torskildum fyrirbærum. Íshræringar í sumum vötnum geta til dæmis framkallað hljóð sem líkjast gauli eða skerandi veini og vöktu hugmyndir um sænaut. Hraunmyndanir og klettar í landslagi geta með ljósi og skuggum tekið á sig ótal kynjamyndir í augum hugmyndaríks ferðalangs og hann samið tröllasögu til skýringar og skemmtunar. Fyrir tíu til fimmtán árum var ég einn á göngu frá Hrafntinnuskeri niður að Álftavatni. Allt í einu sá ég hávaxna gamla konu í síðu pilsi með sjal koma á móti mér í nokkrum fjarska og leiða svosem átta ára barn við hönd sér. Þetta hlýtur að vera missýning, hugsaði ég í fyrstu og nuddaði augun. En þetta virtist mjög greinilegt, og í svosem stundarfjórðung hélt ég göngu minni áfram og hugleiddi hvað kona á þessum aldri og í slíkum klæðnaði væri að vilja hér uppi á hálendinu. Loks sá ég að þetta var þrátt fyrir allt ekki annað en klettamyndun. En hvað hefði ég mátt halda ef til dæmis þoka hefði skyndilega læðst yfir og missýningin ekki uppgötvast? Frá hverju hefði ég sagt? Hvað hefði hugmyndaríkur ferðalangur sagt? Íslenskt landslag getur víða kallað á skýringu þar sem ekki verða skil milli skáldskapar og vísinda. Hví er skarð í fjall, vatn í miðjum dal, stök ey og drangur í hafi? Sumum býður ótta af víðáttu öræfanna. Geta þau í raun verið mannlaus eða búa þar útilegumenn? Hví má sjá leifar af byggðum á fjöllum uppi sem löngu hafa lagst í eyði? Hví hverfa menn sporlaust í þessu landslagi? Örnefni heimavið og í byggð höfðu oftast þann upphaflega tilgang að festa ýmis kennileiti í minni og auðvelda mönnum þannig að rata heim og heiman eða skipa smala, kúarektor og öðru vinnufólki fyrir verkum. Uppi í óbyggðum höfðu örnefni sama tilgang fyrir ferðamenn og fjallkóng til að skipa fyrir um svæði fjárleitarmanna. Sögur um örnefni stuðluðu að viðhaldi þeirra. Afbökuð eða torskilin örnefni kalla einnig á skýringu. Sem dæmi má taka Ígultjarnir sem til eru á nokkrum stöðum og tengjast sögu af fjöldamorðingja vegna hendingar í gamalli þulu: ekur hann þeim í ígultjörn. Ígull virðist hinsvegar vera sjaldgæft heiti á fergini eða öðrum broddóttum plöntum sem hylja síki og tjarnir en börnum og skepnum hættir til að álpast út í og drukkna. Þá getur orðið til saga um Yglu óvætti í Yglutjörn, og hún er, eins og fyrr var minnst á, langtum áhrifameiri til að vara börn við hættu heldur en raunvísindaleg skýring. Nykurtjarnir, klettar og aðrir álagablettir eru einatt staðir þar sem börn gætu hæglega farið sér að voða, til dæmis við klifur. Oft virðist hér einnig um eðlilega náttúruvernd að ræða svo sem varúð gegn ofveiði í silungapolli eða fuglabjargi eins og sagan um Skötutjörn á Þingvöllum sýnir. Upprunaleg orsök venju hefur oft úrelst og gleymst en menn halda henni samt við og búa stundum til nýja skýringu.(30) Oft hafa slíkar sögur samt orðið til af skáldhneigð einni saman eða annarri óskáldlegri þörf. Ég átti það sjálfur til sem unglingur, þegar annað fólk var í heyskap og ég látinn hafa ofan af fyrir yngri krökkum, að búa til sögur um huldufólk í hólum og klettum í nágrenninu. Þetta auðveldaði vissulega barnapössunina, en áratugum seinna hef ég orðið var við að sama fólk hefur á fullorðinsaldri haft þessar sögur eftir við sín eigin börn og barnabörn eins og þær væru "þjóðtrúarsögur". Líkt er að segja um gamansemi, smáskreytni og stílfærslu sögumanna. Varast ber að vanmeta skopskyn þeirra og tvíræðni en víða úir og grúir af dæmum um slíkt í þjóðsögum og fornsögum. Sumir fróðleiksmenn hafa hinsvegar átt erfitt með að greina milli gaspurs og veruleika. Alþekkt dæmi er hin lífseiga frásögn um hlaup bónda á brókinni kringum bæinn á fyrsta morgni þorra sem hvergi finnst staðfest. Annað dæmi er bannið við kjötáti á langaföstu sem átti að hafa gengið svo langt að "enginn mátti nefna ket alla föstuna langa". Þetta hafa fræðarar í skólum og útvarpi heyrst tíunda sem fúlustu alvöru.(31) Um misskilda gamansemi í fornsögu mætti nefna hálærðar vangaveltur um augljóst glens karlanna Yngvars og Skallagríms við Egil litla, heimsókn hans til afa síns og meinta ofdrykkju 3ja ára, svo og vísurnar um kuðungana og andareggið sem góðglaðir karlarnir hafa sýnilega ort fyrir munn Egils. Annað mál er að barnið Egill kann að hafa tekið þetta allt alvarlega og jafnvel fundist fram á elliár að þannig hefðu hlutirnir gengið til, nema öll sagan sé ekki annað en glens sagnaþula.(32) Framandleg orð geta líka kallað á skýringu. Sem dæmi má taka austfirska orðið vökustaur sem merkti aukabita á kvöldvöku. Einhver misskildi það sem augntepru til að halda mönnum vakandi við tóvinnu og sú merking breiddist út um aðra landshluta fyrir tilverknað prentaðra þjóðsagna. Augnlæknar segja að enginn hefði getað unnið neitt að gagni með slíkt píslartæki í augunum. Það er síðan sama hversu oft þetta er leiðrétt. Fólk virðist vilja halda sér við ruglið. Það er nefnilega svo miklu skemmtilegra.(33) Ýmsar veðurspár tengdar merkidögum bárust hingað á 17. öld með þýddum almanökum sunnan úr Evrópu þar sem eitthvert mark gat hugsanlega verið á þeim takandi svo sem um veðurfar á Pálsmessu og kyndilmessu. Þær áttu hinsvegar lítið skylt við íslenska veðráttu og athugulir íslenskir veðurspámenn og almanakshöfundar töldu þær hégóma. Á þeim er líka mikill munur og veðurspám sem markast af aldalangri reynslu manna í hverju héraði. Þessar útlendu veðurspár geymdust samt í uppskriftum og sumir hafa sennilega tekið eitthvert mark á þeim. Þaðan bárust fáeinar þeirra sem skringilegheit inn í íslensk þjóðfræðasöfn á 19. öld, en nú á dögum er ósjaldan fullyrt í fjölmiðlum að þetta sé dæmigerð íslensk "þjóðtrú".(34) Sögur af huldufólki og útilegumönnum lýsa oft draumi um betri heim eða ófullnægðri ástarþrá. Kvæði um ókindur voru notuð til að aga börn svo þau vöruðust óvenjur og ærsl. Sagnir af umskiptingum gátu sprottið vegna misþroska barna sem ekki verður augljós fyrr en þau eru komin nokkuð á legg. Þær urðu líka áminning um að gæta vel að ungbörnum. Sögur um afturgöngur gátu verið árangursríkt ráð til að kenna mönnum að ganga vel um legstaði og fara varlega með dauðs manns bein. Aðrar spruttu af torskildum fyrirbærum í náttúrunni. Frostsprungur í jörðu sem liggja undir hús geta til dæmis valdið því að við viss veðurskilyrði er því líkast sem bærinn sé laminn utan að nóttu þar til sól tekur aftur að skína og verma jörðina.(35) Fyrir tíma dýralækna gat óvæntur gripadauði vakið hugmynd um galdrasendingu. Það er varla einleikið að talsverð gróska virðist hlaupa í þessháttar draugasögur í tengslum við fjársýkina 1760-70. Mórar og skottur hefðu getað átt sér hliðstæðu í þroskaheftum unglingum eða niðursetningum sem sættu illri meðferð. Sögurnar gætu þá túlkað hefndarhug þeirra, samlíðun nágranna og jafnvel brenglaða samvisku fúlmenna. Rugluð eða drykkfelld stertimenni hefðu einnig getað orðið fyrirmynd að ýmsum flökkudraugum. Þrátt fyrir alla þessa upptalningu má ekki gleyma þeim mörgu hughreinu einstaklingum sem í einlægni telja sig verða fyrir dulrænni reynslu. Á það skal heldur enginn dómur lagður hvort einmitt þeir kunni ekki að hafa rétt fyrir sér, en við hin, sem aldrei verðum vör við neitt, séum á villigötum. Ég vildi reyndar óska að þeir hefðu rétt fyrir sér. Það væri svo miklu notalegra að vita af landinu okkar fullu af vættum. Hitt verður að staðhæfa að þessir ágætu og að mörgu leyti öfundsverðu einstaklingar eru ekki hið sama og allur fjöldinn. Einnig þekktust menn sem þóttust búa yfir dulrænum hæfileikum líkt og Eggert Ólafsson nefndi þegar á 18. öld. Með því vildu þeir ávinna sér ákveðna virðingu. Um það vissi ég mér nákomin dæmi. Og nú á dögum er það blátt áfram orðinn atvinnuvegur að vera skyggn, eins og dæmin sýna um alla jarðálfana, gnómana og blómálfana sem fólk þykist verða vart við inni í Elliðaárdal, uppi í Öskjuhlíð, suður í Hafnarfjarðarhrauni og nánast hvar sem þess er óskað, þótt þeirra hafi hvergi sést getið á Íslandi fyrr en á síðasta aldarfjórðungi. Enda er þetta einn af ávöxtum amerísku hippatískunnar. Öll fyrirbæri af þessum toga gefa þeim efni í hendur sem að upplagi eru hneigðir til sagnagerðar og skáldskapar. Þeir trúa jafnvel sögum sínum sjálfir meðan þeir eru að semja og segja þær. Þá njóta þeir gleði listamannsins. Því auðugri skáldæð sem slær í sögumanni, þeim mun áhrifameiri og vinsælli verður sagan. Vart þarf að efa að Halldór frá Laxnesi hefði getað komið ýmsum góðum sögum á kreik, þótt hann hefði verið á dögum fyrir tíma skáldsagnaritunar. En þá væri nafn hans sennilega óþekkt. Útbreiðsla sagna Ástæða er til að hugleiða hvernig munnmælasögur gátu dreifst um landið og fengið mismunandi svipmót áður en þær voru til skrifaðar, hvað þá prentaðar. Einn þáttur þess tengist sennilega atvinnuháttum og samfélagsgerð. Byggð á Íslandi var ævinlega mjög strjál. Ekki svo mikið sem smáþorp var til fyrr en Reykjavík í lok 18. aldar. Samkomuhús voru nánast engin að frátöldum kirkjum og á nokkrum stöðum voru þinghús fyrir hreppsfundi. Ekkert samkvæmislíf þekktist á borð við leiksýningar eða dansleiki. Þeir voru auk þess forboðnir af kirkjunni frá 17. öld og sjálfu konungsvaldinu um miðja 18. öld. Skemmtun fór því einkum fram í heimahúsum og fólst í upplestri, frásögnum, kveðskap, söng og hlustun. Á hinn bóginn þurftu Íslendingar að ferðast mikið. Á hverju ári fór fjöldi manna langar leiðir fram og aftur á vertíð. Á öðrum tímum réðu menn sig í kaupavinnu í fjarlægum héruðum. Kaupstaðarferðir vor og haust gátu tekið marga daga. Ekki þekktust nein gistihús eða veitingastaðir. Ef menn lágu ekki í tjaldi, hlutu þeir að gista á bóndabæ. Yfirleitt áttu ferðalangar ekkert reiðufé til að borga næturgreiða, enda var þess sjaldnast krafist. Hvernig launuðu menn þess í stað? Sagt er að sumir hafi skilið eftir fiskkippu svo lítið bar á þegar þeir komu á sama bæ aftur úr verinu. Aðrir gáfu heimilisfólki af nesti sínu eða færðu húsbændum smíðisgripi. Oft tóku gestir einnig þátt í ullarvinnu á kvöldvökunni og jafnvel smíðum ef þeir voru laghentir. Góðir raddmenn sungu, kváðu eða lásu úr bók, aðrir sögðu fréttir úr fjarlægum héruðum eða af eigin ferðalagi, og nokkrir fóru með sögur. Það þótti ekki versta greiðsla fyrir veittan beina því sagnamenn voru vinsælir. Hér gat sameinast frásagnargleði og þakklátir hlustendur. Þetta var ein helsta tilbreyting manna fyrir daga nútíma fjölmiðla og afþreyingarefnis. Varla leikur vafi á því að ferðanauðsyn manna, gistihúsaleysi og skortur á skotsilfri hafa með þessum hætti stuðlað að dreifingu sagna um landið.(36) Orsakir alþjóðafrægðar Af öllu því sem að framan er sagt virðist ljóst að aldrei hefur nema tiltölulega lítill hluti Íslendinga (ca. 10%) verið sanntrúaður á drauga, huldufólk eða aðrar dularverur nema ef vera skyldi að einhverju leyti á 17. öld. Þá vaknar sú spurning hvernig við höfum öðlast slíka alþjóðafrægð fyrir furðutrú sem ótal fyrirspurnir erlendra fjölmiðla eru til vitnis um. Í fyrsta lagi eru tíu af hundraði alls ekki lítið hlutfall af þjóð. Hjá okkur merkir það 25 þúsund manns. Að auki eru svo allar þær tugþúsundir sem hvorki vilja játa né neita með öllu hugsanlegri tilveru einhverra yfirnáttúrlegra fyrirbæra. Fyrir kristilega innrætta erlenda fjölmiðlamenn er slík afstaða nánast hið sama og hjátrú, þar sem hvorki draugar né huldufólk eru nefnd í Biblíunni. Í öðru lagi hafa furðutrúarmenn ævinlega verið eftirsóttir af áheyrendum, sagnasöfnurum og rithöfundum og á síðari tímum af blaðamönnum og öðru fjölmiðlafólki. Dularfull fyrirbæri hafa jafnan þótt meira spennandi og betra frásagnarefni en hversdagslegt amstur. Fjölmiðlungar af öllum toga voru og eru enn á höttunum eftir furðusögum og sérvisku og hampa þeim sem mest þeir mega, en eru tómlátir um raunverulegt viðhorf fjöldans. Því er hlutur dultrúarmanna í umfjöllun fjölmiðla margfalt meiri en raunverulegur fjöldi þeirra. Í þriðja lagi játa flestir Íslendingar því greiðlega ef þeir á annað borð trúa á tilvist álfa, drauga eða annarra vætta og dulmagna. Hér á landi eru menn fremur stoltir af furðutrú sinni og ófáir gera sér hana jafnvel upp. Þeir vita nefnilega vel að með því móti gera þeir sig eftirsóknarverðari í augum fjölmiðla. Þetta er annað viðhorf en algengast er í öðrum vestrænum og kristnum löndum. Þar fara menn yfirleitt í launkofa með slíka furðutrú, enda er hún í andstöðu við kenningar kirkju og svonefndrar siðmenningar. Þjóðfræðingum og fréttamönnum héraðsfjölmiðla í nokkrum löndum hefur þó tekist að grafa ýmislegt af þessum toga upp á síðari áratugum.(37) Í fjórða lagi er auglýsing þessarar meintu almennu þjóðtrúar orðin einskonar útflutningsvara sem meðal margs annars á að laða erlenda ferðamenn til landsins. Ferðaþjónustan er orðin ein mikilvægasta atvinnugrein landsmanna. Það mætti því næstum kalla það skemmdarverk við efnahag þjóðarbúsins og allt að því landráð að láta nokkurn vafa í ljósi um sannleiksgildi slíkra staðhæfinga. Kannski er eins gott að Skírnir birtir ekki ágrip greina á erlendu tungumáli. Ferðamannaþjóðfræði Alkunn dæmi um fyrrnefnda ferðamannaþjóðfræði eru beygjur og sveigar á akvegum sem sagt er að séu þannig lagðir af ótta við að spilla hulduhólum og álfasteinum. Upphaf þessa má rekja til hestkerrualdar þegar menn höfðu ekki afkastameiri verkfæri en haka og skóflu og vildu heldur krækja framhjá hólum og klettum en reyna að brjóta þá niður til að fá beinni veg. Fyrstu áratugina notuðust bílar að mestu við þessar gömlu kerruslóðir. Eftir seinna stríð voru jarðýtur og skurðgröfur komnar í leikinn og nú skyldu lagðir beinir og breiðir vegir. Þá reyndust unnendur náttúru og skáld á meðal okkar sumstaðar hafa tekið ástfóstri við einstaka hóla og steina í alfaraleið. Margir hljóta að kannast við þá eftirsjá sem menn verða fyrir þegar bernskuslóðum þeirra er umturnað. Hér er án efa einnig um að ræða fegurðarskyn og frumstæða, heilbrigða tilfinningu fyrir umhverfisvernd. Sjaldan stoðar þó mikið að höfða til slíkra eiginleika meðal verktaka. Öllu skár hefur gengið að kalla þessar mishæðir híbýli huldufólks þótt enginn hafi áður heyrt þeirra getið og vísa til draumfara. Ef auk þess varð slys á mönnum eða tækjum við slíkar vegabætur þurfti ekki frekar vitnanna við. Einna þekktastur þessara steina er sá sem nú stendur klofinn milli Grafarholts og Keldna fyrir ofan Reykjavík. Um áramótin 1970-71 var þrem misstórum steinum ýtt úr gömlu fari sínu til að rýma fyrir nýjum vegi. Við það brast stærsti steinninn, Grásteinn, í tvennt. Fólkið í Grafarholti hafði aldrei heyrt um neina álfabyggð í steininum. Eftir að þrír vegargerðarmanna urðu fyrir meiðslum komst sú saga samt á kreik seinna um sumarið að hætt hefði verið við að flytja steininn vegna slysa og aðvarana frá huldufólki en í staðinn hefði vegurinn verið lagður framhjá steininum. Þessi útgáfa hefur síðan verið sögð hverjum ferðamanni.(38) Vestur í Grundarfirði stendur Stóristeinn á skipulögðu svæði í Hjaltalínsholti ofan við Grundargötu. Maður fæddur 1909, sem ætíð hefur átt heima í Eyrarsveit, kannast ekki við neinar álfasögur um Stórastein. Af umhverfissjónarmiðum kom hinsvegar á sínum tíma upp ágreiningur um það í byggingarnefnd hvort reikna ætti með að steinninn yrði fjarlægður. Það varð þó ofan á og lóðin hefur þegar fengið númerið 81. Nú kvað bæjarstjórnin þó vera orðin efins um að rétt væri að færa steininn til að rýma fyrir húsi því að sú saga sé komin á kreik að þetta sé álfasteinn sem hafi fengið sitt eigið húsnúmer. Þess sjást þegar merki að ferðamenn geri stans í Grundarfirði til að líta á og taka myndir af þessum einstæða álfasteini með eigin húsnúmeri - og að sjálfsögðu versla þeir í leiðinni.(39) Villandi orð Enda þótt orðið þjóðtrú láti vel í munni eru báðir hlutar þess vægast sagt óþægilega villandi miðað við það gagnsæi sem löngum hefur talist aðal íslenskrar tungu. Fyrri hlutinn vísar til þjóðarinnar allrar eða mikils meirihluta hennar. Seinni hlutinn ber í sér merkinguna trúfesti í stað efahyggju eða hugarflugs. Báðir hlutar orðsins eru því annað tveggja ómeðvitaðar ýkjur eða óskhyggja nýrómantískra fræðimanna frá því um og eftir síðustu aldamót sem með þessu móti heimfærðu skáldlegt hugarflug skemmtilegs minnihluta upp á þjóðina alla. Það er leitt að þurfa að amast við þessu hlýlega orði sem maður er alinn upp. Undan því verður þó naumast vikist öllu lengur vegna ofnotkunar þess um allskyns tímabundin eða nýinnflutt fyrirbæri af hálfu ýmissa aðilja svosem fjölmiðlunga, ferðaútgerðarmanna og svokallaðra nýaldarsinna. Nógu slæmt er að orðið skuli vera villandi um merkilegar frumhugmyndir sem kunna að hafa erfst frá alda öðli meðal manngerða sem eru náttúraðar fyrir slíkar hugleiðingar. Verra er að klína því á hvaða innflutta eða uppdiktaða söluvöru sem vera kann.(40) Enn skal það áréttað að Jón Árnason kallaði munnmælin á sínum tíma skáldskap þjóðarinnar sem sprytti af sífrjóu ímyndunarafli hennar. Við fáum líka seint fullþakkað öllu því sagnaglaða fólki ásamt sjáendum og heyrendum sem hafa skilað þessu margslungna efni til okkar. Því er verðugt íhugunarefni hvort ekki sé kominn tími til þess að taka undir orð forvígismannsins um hið alþýðlega hugarflug, að minnsta kosti í okkar eigin hóp, hvað sem okkur kann að henta að segja túristum. Sennilega er orðið um seinan að lagfæra þann ofskilning sem lagður hefur verið í orðið þjóðtrú síðustu hundrað ár. Það er samt vinsamleg ábending til allra þeirra sem um þessi efni ræða og skrifa að nota orðið sparlega til að gera þeim meirihluta þjóðarinnar ekki rangt til sem ekki trúir á huldar vættir eða önnur dulmögn, hvað þá gnóma og blómálfa, þótt svo hann kunni að hafa vinsamlega afstöðu til allra slíkra fyrirbæra. Tölum heldur blátt áfram um trú á álfa, drauga, fyrirboða, forspár, draumvitranir, huldulækna, stjörnuspár, forlög, álagabletti, galdra, náttúrudýrkun, forneskju og hvað eina eftir því sem við á hverju sinni eða köllum það einu nafni furðutrú, en hlífumst við að tönnlast á orðinu þjóðtrú í tíma og ótíma. Til baka í aðalvalmynd Aftanmálsgreinar (1) G. O. Oddsen. Almenn landaskipunarfræði II, Kh. 1822, 360. Til baka. (2) Tvær ævisøgur, Kh. 1839, 37. Til baka (3) Lanztíðindi, 16. tbl. 1850, 66. Til baka. (4) Páll Melsteð. Nýja sagan I, 2. hefti, Rv. 1870, 15. Til baka. (5) Fróði 1884, 260-61. Til baka. (6) Lögfræðingur 1899, 3. Til baka. (7) Ólafur Davíðsson. Ég læt allt fjúka, Rv. 1955, 121. Til baka. (8) Úr fórum Jóns Árnasonar II, Rv. 1951, 281. - Ólafur Davíðsson. Íslenzkar skemtanir, Kh. 1888-92, 2, 4, 31-32. - Sunnanfari IV, 26; V, 58. Til baka. (9) Tímarit Hins íslenska bókmenntafélags 1891, 97, sbr. 107. Til baka. (10) Bjarki 1896, 3; 1902, 38, 2. Til baka. (11) Þjóðtrú og þjóðsagnir. Önnur útgáfa aukin, Ak. 1977, 1-11. - Jónas Jónasson. "Ódauðleiki og annað líf." Skírnir 1915, 44; Íslenzkir þjóðhættir, Rv. 1934, 389, 406, 408, 416, 418-419, 423, 427, 436. - Sigfús Sigfússon. Íslenskar þjóðsögur og sagnir. Ný útgáfa. Rv. 1982-1993. II, 3; III, 3-4. - Einar Ól. Sveinsson. Um íslenzkar þjóðsögur, Rv. 1940, v, 128 og víðar. Til baka. (12) Ásgeir Blöndal Magnússon. Íslensk orðsifjabók, Rv. 1989, 35, 313, 328. Sbr. Pétur Pétursson. Church and Social Change, Rv. 1990, 87-146. Til baka. (13) Fjölnir III 2, 29. Sbr. Skírnir 1845, 26; Reykjavíkurpósturinn II, 137. Til baka. (14) Úr fórum Jóns Árnasonar I, 200. Til baka. (15) Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri. Safnað hefir Jón Árnason. Ný útgáfa. Rv. 1954-1961. II, xxxiv. - Úr fórum Jóns Árnasonar I, 129, 143, 200. - Íslenzkar gátur, skemtanir, vikivakar og þulur. Safnað hafa Jón Árnason og Ólafur Davíðsson. I-IV. Kh. 1888-1903. Til baka. (16) Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri I, xvii, xxiii; II, xxxviii, 561. - Úr fórum Jóns Árnasonar II, 47-50, 54-55. Til baka. (17) Alvíssmál, 10., 12., 14., 16., 18., 20., 22., 24., 28., 30., 32. vísa; Lokasenna, 30. vísa. - Edda Snorra Sturlusonar. Útg. Finnur Jónsson. Kh. 1931, 25. - Ísl. fornrit IV, 93-95, 148-152, 215; V, 39-40, 69; VI, 298-301; VII, 112-123, 175-177, 184, 200; IX, 174-190, 207; XIII, 255, 285. - Biskupa sögur. II, Kh. 1878, 77-78, 80-82. - Jarlmanns saga ok Hermanns, Kh. 1963, 49. - Fornaldarsögur Norðurlanda III, Rv. 1944, 399. - Annálar 1400-1800. Rv. 1922-1988. I, 218-219; V, 290. - Munnmælasögur 17. aldar. Bjarni Einarsson bjó til prentunar. Kh. 1955, 18, 35. Til baka. (18) Oddur Einarsson. Íslandslýsing. Rv. 1971, 47-49; sbr. Qualiscunque Descriptio Islandiae. Hamburg 1928, 14-15. Til baka. (19) Arne Magnusson. Brevveksling med Torfæus. Kh. 1916, 66. Til baka. (20) Eggert Ólafsson. Ferðabók, Rv. 1974, 275-82. - Árbækur Espólíns VII, Kh. 1825, 15; sbr. Hilmar Garðarsson. "Upplýsing gegn hjátrú". Sagnir 1989, 38-45. Til baka. (21) Sbr. Ólafur Davíðsson. Galdur og galdramál á Íslandi. Rv. 1940-43. - Jónas Jónasson frá Hrafnagili. Íslenzkir þjóðhættir, 404-05. Til baka. (22) Magnús Stephensen. Eptirmæli átjándu aldar. Leirárgörðum 1806, 594. - Ebenezer Henderson. Iceland or the Journal of a Residence in that Island during the Years 1814 and 1815. Edinburgh 1819, 427. Til baka. (23) Isländische Volkssagen der Gegenwart. Leipzig 1860, viii. Til baka. (24) Jónas Jónasson. Íslenzkir þjóðhættir, 389. Til baka. (25) Sigurður Nordal. Þjóðsagnabókin I, Rv. 1971, xlix-li. Til baka. (26) Erlendur Haraldsson. Þessa heims og annars. Rv. 1978, 7-30. Til baka. (27) Eggert Ólafsson. Ferðabók, Rv. 1974, 281. Til baka. (28) Sjá t.d. nýlegt dæmi í Árbók Ferðafélags Íslands 1993, 25. Til baka. (29) Sbr. Árni Björnsson. Íslenskt vættatal, Rv. 1990, 160. Til baka. (30) Sbr. Árni Björnsson. Íslenskt vættatal, 11, 73, 162. Til baka. (31) Jón Árnason. Íslenskar þjóðsögur og ævintýri II, 550-51, 562, 565, 574. - Árni Björnsson. Saga daganna. Rv. 1993, 444, 527-28. Til baka. (32) Íslenzk fornrit II, v-xvi, 80-83. Til baka. (33) Þjs. JÁ II, 568-69. - Jónas Jónasson. Íslenzkir þjóðhættir, 113. - Árni Björnsson. "Vökustaur". Árbók Fornleifafélagsins 1975, 47-68; Saga daganna 1993, 335-37. Til baka. (34) Árni Björnsson. "Pálsmessa og kyndilmessa". Árbók Fornleifafélagsins 1982, 154-70; "Tímatal". Íslensk þjóðmenning VII, 95-96. Til baka. (35) Páll Einarsson. "Skarkárinn á Látrum og skyldulið hans". Náttúrufræðingurinn 1990, 264-72. Til baka. (36) Sbr. Lúðvík Kristjánsson. Íslenzkir sjávarhættir II. Rv. 1982, 389, 392, 398. Til baka. (37) Sjá t.d. Linda Dégh. Narratives in Society. Helsinki 1995, 218-24. (FF Communications 255). Til baka. (38) Vísir 29. júlí 1971, 9-10. Til baka. (39) Samtal við Eið Björnsson byggingafulltrúa, Friðrik Tryggvason verkstjóra, Inga Hans Jónsson og Pétur Konráðsson Grundarfirði 8. og 11. desember 1995. Til baka. (40) Af ásettu ráði er hér ekki vísað í tiltekin dæmi. Það gæti verið ósanngjarnt að draga fram einstakar nýlegar uppákomur án þess að rekja sögu þessa fyrirbæris síðustu hálfa öld. Þeir verða að taka sneið sem eiga. Til baka. Til baka í aðalvalmynd