Frá völsungum Electronic edition by Adalsteinn Davidsson, 5 Nov 1994 Sigmundur konungur Völsungsson átti Borghildi af Brálundi. Þau hétu son sinn Helga og eftir Helga Hjörvarðssyni. Helga fóstraði Hagall. Hundingur hét ríkur konungur. Við hann er Hundland kennt. Hann var hermaður mikill og átti marga sonu þá er í hernaði vóru. Ófriður og dylgjur vóru á milli þeirra Hundings konungs og Sigmundar konungs. Drápu hvorir annarra frændur. Sigmundur konungur og hans ættmenn hétu Völsungar og Ylfingar. Helgi fór og njósnaði til hirðar Hundings konungs á laun. Hemingur, sonur Hundings konungs, var heima. En er Helgi fór í brott, þá hitti hann hjarðar[svein] og kvað: 1. "Segðu Hemingi að Helgi man hvern i brynju bragnar felldu. Ér úlf gráan inni höfðuð, þar er Hamal hugði Hundingur konungur." Hamall hét sonur Hagals. Hundingur konungur sendi menn til Hagals að leita Helga en Helgi mátti eigi forðast annan veg en tók klæði ambáttar og gekk að mala. Þeir leituðu og fundu eigi Helga. Þá kvað Blindur inn bölvísi: 2. "Hvöss eru augu í Hagals þýju; er-a það karls ætt, er á kvernum stendur,' steinar rifna stökkur lúður fyrir. 3. Nú hefir hörð dæmi hildingur þegið, er vísi skal valbygg [mala]. Heldur er sæmri hendi þeirri meðalkafli en möndultré." Hagall svaraði og kvað: 4. "Það er lítil vá þótt lúður þrumi er mær konungs möndul hrærir. Hún skævaði skýjum efri og vega þorði sem víkingar, áður hana Helgi höftu gerði. Systir er hún þeirra Sigars og Högna; því hefir ötul augu Ylfinga man." Undan komst Helgi og fór á herskip. Hann felldi Hunding konung og var síðan kallaður Helgi Hundingsbani. Hann lá með her sinn í Brunavogum og hafði þar strandhögg og átu þar [h]rátt. Högni hét konungur. Hans dóttir var Sigrún. Hún var valkyrja og reið loft og lög. Hún var Svá[va] endurborin. Sigrún reið að skipum Helga og kvað: 5. "Hverir láta fljóta fley við bakka? Hvar, hermegir, heima eiguð? Hvers bíðið ér í Brunavogum? Hvert lystir yður leið að kanna?" Helgi kvað: 6. "Hamall lætur fljóta fley við bakka, eigum heima í Hléseyju, bíðum byrjar í Brunavogum, austur lystir oss leið að kanna." Sigrún kvað: 7. "Hvar hefir þú, hilmir, hildi vakta eða gögl alin Gunnar systra? Hví er brynja þín blóði stokkin? Hví skal und hjálmum hrátt kjöt eta?" Helgi kvað: 8. "Það vann næst nýs niður Ylfinga fyr vestan ver, ef þig vita lystir, er eg björnu tók í Bragalundi og ætt ara oddum saddag. 9. Nú er sagt, mær, hvaðan sakar gerðust, því var á legi mér lítt steikt etið." Sigrún kvað: 10. "Víg lýsir þú, varð fyr Helga Hundingur konungur hníga að velli. Bar sókn saman er sefa hefnduð og busti blóð á brimis eggjar." Helgi kvað: 11. "Hvað vissir þú, að þeir sé, snót svinnhuguð, er sefa hefnduÐ? Margir eru hvassir hildings synir og ámunir ossum niðjum." Sigrún kvað: 12. "Vark-a eg fjarri, folks oddviti, gær á morgun grams aldurlokum. Þó tel eg slægjan Sigmundar bur, er í valrúnum vígspjöll segir. 13. Leit eg þig um sinn fyrr á langskipum, þá er þú byggðir blóðga stafna og úrsvalar unnir léku. Nú vill dyljast döglingur fyr mér, en Högna mær [Helga] kennir." Granmar hét ríkur konungur er bjó að Svarinshaugi. Hann átti marga sonu: Höðbroddur, annar Guðmundur, þriðji Starkaður. Höðbroddur var í konungastefnu. Hann fastnaði sér Sigrúnu Högnadóttur. En er hún spyr það þá reið hún með valkyrjur um loft og um lög að leita Helga. Helgi var þá að Logafjöllum og hafði barist við Hundings sonu. Þar felldi hann þá Álf og Eyjólf, Hjörvarð og Hervarð, og var hann allvígmóður og sat undir Arasteini. Þar hitti Sigrún hann og rann á háls honum og kyssti hann og sagði honum erindi sitt, svo sem segir í Völsungakviðu inni fornu: 14. Sótti Sigrún sikling glaðan, heim nam hún Helga hönd að sækja, kyssti og kvaddi konung und hjálmi; þá varð hilmi hugur á vífi. 15. Fyrr lést hún unna af öllum hug syni Sigmundar en hún séð hafði. 16. "Var eg Höðbroddi í her föstnuð en jöfur annan eiga vildag. Þó sjáumk, fylkir, frænda reiði, hefi eg míns föður munráð brotið." 17. Nam-a Högna mær um hug mæla, hafa kvaðst hún Helga hylli skyldu. Helgi kvað: 18. "Hirð eig þú Högna reiði né illan hug ættar þinnar. Þú skalt, mær ung, að mér lifa; ætt áttu, in góða, er eg eigi sjáumk." Helgi safnaði þá miklum skipaher og fór til Frekasteins og fengu í hafi ofviðri mannhætt. Þá kvómu leiftur yfir þá og stóðu geislar í skipin. Þeir sá í loftinu að valkyrjur níu riðu og kenndu þeir Sigrúnu. Þá lægði storminn og kvómu þeir heilir til lands. Granmarssynir sátu á bjargi nokkuru er skipin sigldu að landi. Guðmundur hljóp á hest og reið á njósn á bergið við höfnina. Þá hlóðu Völsungar seglum. Þá kvað Guðmundur Granmarsson: 19. "Hver er skjöldungur sá er skipum stýrir, lætur gunnfána gullinn fyr stafni? Þykkja mér friður í fararbroddi, verpur vígroða um víkinga. Sinfjötli kvað: 20. "Hér má Höðbroddur Helga kenna, flótta trauðan í flota miðjum. Hann hefur eðli ættar þinnar, arf Fjörsunga, und sig þrungið. Guðmundur kvað: 21. "Því fyrr skulu að Frekasteini sáttir saman um sakar dæma. Mál er, Höðbroddur, hefnd að vinna ef vér lægra [h]lut lengi bárum." Sinfjötli kvað: 22. "Fyrr muntu, Guðmundur, geitur um halda og bergskorar brattar klífa, hafa þér í hendi heslikylfu. Það er þér blíðara en brimis dómar. Helgi kvað: 23. "Þér er, Sinfjötli, sæmra miklu gunni að heyja og glaða örnu en ónýtum orðum að deila, þótt hildingar heiftir deili. 24. Þykki-t mér góðir Granmars synir, þó dugir siklingum satt að mæla. Þeir merkt hafa á Móin[sheimum] að hug hafa hjörum að bregða; eru hildingar helsti snjallir. Guðmundur reið heim með hersögu. Þá söfnuðu Granmarssynir her. Kómu þar margir konungar. Þar var Högni, faðir Sigrúnar, og synir hans, Bragi og Dagur. Þar var orrusta mikil og féllu allir Granmarssynir og allir þeirrra höfðingjar nema Dagur Högnason fékk grið og vann eiða Völsungum. Sigrún gekk í valinn og hitti Höðbrodd að kominn dauða. Hún kvað: 25. "Mun-a þér Sigrún frá Sefafjöllum Höðbroddur konungur, hníga að armi. Liðin er ævi - oft náir hreifi [hrævi?] gránstóð gríðar - Granmars sona." Þá hitti hún Helga og varð allfegin. Hann kvað: 26. "Er-at þér að öllu, alvitur, gefið, þó kveð eg nökkvi nornir valda féllu í morgun að Frekasteini Bragi og Högni, varð eg bani þeirra. 27. En að Styrkleifum Starkaður konungur, en að Hlébjörgum Hrollaugs synir. Þann sá eg gylfa grimmúðgastan, er barðist bolur, var á brott höfuð. 28. Liggja að jörðu allra flestir niðjar þínir að nám orðnir. Vannt-at-tu vígi, var þér það skapað að þú að rógi ríkmenni vart." Þá grét Sigrún. Hann kvað: 29. "Huggastu, Sigrún, Hildur hefir þú oss verið; vinna-t skjöldungar sköpum." Sigrún kvað: "Lifna mynda eg nú kjósa er liðnir eru, og knætta eg þér þó í faðmi felast." Helgi fékk Sigrúnar og áttu þau sonu. Var Helgi eigi gamall. Dagur Högnason blótaði Óðin til föðurhefnda. Óðinn léði Dag geirs síns. Dagur fann Helga, mág sinn, þar sem heitir að Fjöturlundi. Hann lagði í gegnum Helga með geirnum. Þar féll Helgi en Dagur reið til [Sefa]fjalla og sagði Sigrúnu tíðindi. 30. "Trauður em eg, systir, trega þér að segja, því að eg hefi nauðigur nifti grætta; féll í morgun und Fjöturlundi buðlungur sá er var bestur í heimi og hildingum á hálsi stóð." Sigrún kvað: 31. "Þig skyli allir eiðar bíta þeir er Helga hafðir unna að inu ljósa Leiftrar vatni og að úrsvölum unnar steini. 32. Skríði-at það skip er und þér skríði þótt óskabyr eftir leggist; renni-a sá mar er und þér renni þóttú fjándur þína forðast eigir. 33. Bíti-a þér það sverð er þú bregðir nema sjálfum þér syngvi um höfði. Þá væri þér hefnt Helga dauða ef þú værir vargur á viðum úti, auðs andvani og alls gamans, hefðir eigi mat nema á hræjum spryngir." Dagur kvað: 34. "Ær ertu, systir, og örvita er þú bræður þínum biður forskapa. Einn veldur Óðinn öllu bölvi því að með sifjungum sakrúnar bar. 35. Þér býður bróðir bauga rauða, öll Vandilsvé og Vígdali; hafðu hálfan heim harms að gjöldum, brúður baugvarið og burir þínir." Sigrún kvað: 36. "Sitk-a eg svo sæl að Sefafjöllum ár né um nætur að eg una lífi nema að liði lofðungs ljóma bregði, renni und vísa Vígblær þinig, gullbitli vanur, knega eg grami fagna. 37. Svo hafði Helgi hrædda görva fjándur sína alla og frændur þeirra sem fyr úlfi óðar rynni geitur af fjalli geiskafullar. 38. Svo bar Helgi af hildingum sem íturskapaður askur af þyrni eða sá dýrkálfur döggu slunginn er efri fer öllum dýrum og horn glóa við himin sjálfan." Haugur var gjör eftir Helga. En er hann kom til Valhallar þá bauð Óðinn honum öllu að ráða með sér. Helgi kvað: 39. "Þú skalt, Hundingur, hverjum manni fótlaug geta og funa kynda, hunda binda, hesta gæta, gefa svínum soð áður sofa gangir." Ambátt Sigrúnar gekk um aftan hjá haugi Helga og sá að Helgi reið til haugsins með marga menn. Ambátt kvað: 40. "Hvort eru það svik ein, er eg sjá þykkjumst, eða ragnarök, ríða menn dauðir er jóa yðra oddum keyrið eða er hildingum heimför gefin?" Helgi kvað: 41. "Er-a það svik ein, er þú sjá þykist, né aldar rof þóttú oss lítir, þótt vér jóa óra oddum keyrim, né er hildingum heimför gefin." Heim gekk ambátt og sagði Sigrúnu: 42. "Út gakk þú, Sigrún frá Sefafjöllum, ef þig fólks jaðar finna lystir. Upp er haugur lokinn, kominn er Helgi, dólgspor dreyra, döglingur bað þig að þú sárdropa svefja skyldir." Sigrún gekk í hauginn til Helga og kvað: 43. "Nú em eg svo fegin fundi okkrum sem átfrekir Óðins haukar er val vitu, varmar bráðir, eða dögglitir dagsbrún sjá. 44. Fyrr vil eg kyssa konung ólifðan en þú blóðugri brynju kastir. Hár er þitt, Helgi, hélu þrungið, allur er vísi valdögg sleginn, hendur úrsvalar Högna mági. Hve skal eg þér, buðlungur, þess bót um vinna?" Helgi kvað: 45. "Ein veldur þú, Sigrún frá Sefafjöllum, er Helgi er harmdögg sleginn; grætur þú, gullvarið, grimmum tárum, sólbjört, suðræn, áður sofa gangir. Hvert fellur blóðugt á brjóst grami, úrsvalt, innfjálgt, ekka þrungið. 46. Vel skulum drekka dýrar veigar, þótt misst hafim munar og landa! Skal engi maður angurljóð kveða þótt mér á brjósti benjar líti. Nú eru brúðir byrgðar í haugi, lofða dísir hjá oss liðnum." Sigrún bjó sæng í hauginum. 47. "Hér hefi eg þér, Helgi, hvílu görva angurlausa mjög, ylfinga niður. Vil eg þér í faðmi, fylkir, sofna sem eg lofðungi lifnum myndag." Helgi kvað: 48. "Nú kveð eg einskis örvænt vera síð né snemma að Sefafjöllum er þú á armi ólifðum sefur, hvít, í haugi, Högna dóttir, og ertu kvik in konungborna. 49. Mál er mér að ríða roðnar brautir, láta fölvan jó flugstíg troða; skal eg fyr vestan vindhjálms brúar áður Salgófnir sigurþjóð veki." Þeir Helgi riðu leið sína en þær fóru heim til bæjar. Annan aftan lét Sigrún ambátt halda vörð á hauginum. En að dagsetri er Sigrún kom til haugsins, hún kvað: 50. "Kominn væri nú ef koma hygði Sigmundar bur frá sölum Óðins; kveð eg grams þinig grænast vonir er á asklimum ernir sitja og drífur drótt öll draumþinga til." Ambátt kvað: 51. "Vertu eigi svo ær að ein farir, dís skjöldunga, draughúsa til; verða öflgari allir á nóttum dauðir dólgar, mær, en um daga ljósa." Sigrún varð skammlíf af harmi og trega. Það var trúa í forneskju að menn væri endurbornir en það er nú kölluð kerlingavilla. Helgi og Sigrún er kallað að væri endurborin. Hét hann þá Helgi Haddingjaskati en hún Kára Hálfdanardóttir, svo sem kveðið er í Káruljóðum, og var hún valkyrja.